CarPro HydrO2 4L (Þykkni)
CarPro HydrO2 4L (Þykkni)
HydrO2 þykknið (concentrade) er skolbón sem myndar vatnshrindandi húð á lakk og aðra fleti og gefur fallegan gljáa.
Þynna skal efnið út lágmark 1:6 með vatni. Mælt er með 1:9.
Efnið er öruggt til notkunar á alla fleti bílsins. Lakk, gler, plast og felgur.
Notkunarleiðbeiningar:
-
Ekki setja efnið á heitann flöt eða undir sólarljósi.
-
Þrífa allan bílinn og skola vandlega (passa að bíllinn sé laus við alla sápu).
-
Sprauta þunnu lagi af efninu á rakann flöt og skola það af ekki seinna en 30 sek eftir að því var sprautað á.
-
Skola flötinn með kröftugri bunu.
-
Endurtaka skrefin að ofan á næsta flöt (taka einn flöt fyrir í einu)
-
Eftir að allir fletir hafa verið yfirfarnir skal skola bílinn frá toppi og niður
-
Að lokum skal þurrka bílinn.